ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Matarverð skoðað af samkeppniseftirliti

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:26 › 7. september 2010
Myndin er úr safni.

Myndin er úr safni.

Páll Gunnar Jónsson, forstjóri samkeppniseftirlitsins segir að verð á innfluttri matvöru verði til skoðunar hjá eftirlitinu. Þrátt fyrir mikla styrkingu krónunnar hefur verð á innfluttri matvöru haldist óbreytt, en Páll segir að þetta geti verið afleiðing lítils hagkerfis.

„Við erum alltaf með matvælamarkaðinn til skoðunar. Þetta getur verið ein af vísbendingum um fákeppnisaðstæður, sem að oft fylgja litlum hagkerfum eins og okkar.“ Sagði Páll í fréttum RÚV í kvöld.

Samkvæmt fréttastofu RÚV hafa verslunarmenn lofað því að gengisstyrkingin skili sér í lægra verði á innfluttum mat og drykk. En gengið hefur verið að styrkjast statt og stöðugt á árinu, og þrátt fyrir það bólar ekki á lækkun.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.