ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.6° 10m/s S

Konan á bak við Rooney-skandalinn: Úr ríkidæmi í vændi

11:33 › 7. september 2010
Jennifer Thompson. Erfiður unglingur sem heillaðist af næturlífinu og ríkum knattspyrnumönnum.

Jennifer Thompson. Erfiður unglingur sem heillaðist af næturlífinu og ríkum knattspyrnumönnum.

Faðir hennar er hátt settur maður í olíufyrirtæki og móðir hennar ekur um á Porsche-lúxusbifreið. Í æsku skorti hana ekkert en í dag er hún ein þekktasta vændiskona veraldar. Jennifer Thompson er á allra vörum þessa dagana eftir að hún greindi frá því að hún hefði þjónustað Wayne Rooney sem vændiskona.

Alin upp í ríkidæmi
Daily Mail birtir í dag nokkurs konar nærmynd af þessari 21 árs vændiskonu sem sett hefur allt á annan endann í einkalífi frægasta viðskiptavinar síns.

Thompson er fædd í Aberdeen í Skotlandi en ólst upp í olíuríkinu Katar þar sem faðir hennar starfaði. Hún bjó þar ásamt foreldrum sínum og þremur bræðrum. Þegar fjölskyldan snéri aftur til Bretlands fór hún í einkaskóla og bundu foreldrar hennar miklar vonir við framtíð hennar þegar hún var unglingur. Það fór þó á annan veg.

Foreldrarnir afneita henni
Í dag auglýsir hún sig undir dulnefninu Juicy Jeni og þénar ríflega 200 þúsund krónur fyrir kynlífsgreiðann.

Foreldrar hennar eru sagðir hafa afneitað henni en hún snéri aftur á óðalsetur fjölskyldunnar í Bolton í gær. Hún er ekki með lykil að húsinu en heimildir Mail herma að bróðir hennar hafi hleypt henni inn á meðan foreldrar hennar eru í fríi í Portúgal.

Með fræga fólkinu á Facebook
Breskir fjölmiðlar hafa grafið upp myndir af Jennifer af Facebook-síðu hennar þar sem hún sést stilla sér upp ásamt fjölmörgum þekktum einstaklingum. Hnefaleikakappanum Amir Khan, knattspyrnumönnum, leikurum og kvennagullinu Callum Best, syni George Best annarrar goðsagnar hjá Manchester United.

Erfiður unglingur
Það mun hafa reynst Jennifer erfitt að aðlagast eftir að fjölskylda hennar flutti aftur til Englands og settist að í Bolton. Hún flakkaði milli rándýrra einkaskóla og er sögð hafa verið afar erfiður unglingur, sífellt í uppreisn. Hún var byrjuð að djamma býsna grimmt þegar hún af fimmtán ára og þá fór allt á versta veg hjá henni.

Hún hélt partý nánast um hverja helgi þar sem faðir hennar var nær aldrei heima vegna vinnu sinnar. Hún mun hafa sagt skólafélögum sínum frá því að hún ætti sér þann draum heitastan að ná sér í ríkan knattspyrnumann og deildi sögum af kynlífsævintýrum sínum með vinum sínum.

Þegar hún var sextán ára var hún farin að neyta fíkniefna á borð við kókaín sem eldri menn héldu að henni á djamminu.

Hékk með leikmönnum Bolton
Thompson virðist hafa flosnað úr skóla og fór að vinna á næturklúbbi í Bolton þar sem hún komst í kynni við fleiri knattspyrnumenn og stjörnur auk þess sem hún þénaði aukalega sem glamúrfyrirsæta.

Vinur hennar segir í viðtali við Daily Mail: „Hún ákvað að hún ætlaði að verða WAG (slangur yfir konur og kærustur knattspyrnumanna í Bretlandi) og fór að hanga með leikmönnum Bolton Wanderers. Hún var nokkurs konar brandari í þeirra augum. Auðveldur dráttur.“

„Ég þekki systur mína“
Bróðir hennar Alexander hefur þó enn trú á systur sinni og segist ekki trúa því að hún sé vændiskona.

„Hún hringdi í mig fyrir um tveimur dögum síðan. Sagðist vera að koma til Bolton því það yrði umfjöllun um hana í fjölmiðlum. Ég trúi því ekki að hún sé vændiskona. Ég þekki systur mína. Hún þarf ekki á peningum að halda. Hún getur fengið þá hjá foreldrum mínum sem eru vel stæðir. Hún er athyglissjúk, en indæl stúlka.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?