Katrín Jakobsdóttir situr fund samstarfsráðherra Norðurlanda í Þórshöfn á Færeyjum í dag og segist hafa brugðið mjög við ummæli Jenis av Rana. Henni finnst ómaklegt að ummælin falli í opinberri heimsókn þeirra Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Jónínu Leósdóttur, eiginkonu Jóhönnu.
„Þær eru hér í boði færeyskra stjórnvalda og því er þetta ekki boðlegt. Sjálfri var mér brugðið og hugsa sem svo að sem betur fer eigum við ekki þessu að venjast heima á Íslandi,“ segir Katrín í samtali við DV.
Jenis sagði í gær að hann myndi ekki setjast til borðs með Jóhönnu og Jónínu vegna þess að þær eru samkynhneigðar. Jenis er formaður Miðflokksins á þjóðþingi Færeyja. Hann afþakkaði boð lögmanns Færeyja um að sitja kvöldverð með þeim Jóhönnu og Jónínu.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir