Eingöngu gæsluliðar munu verða eftir í Írak, en þeir eiga að sjá um þjálfun her- og lögreglumanna ásamt því að veita ráðgjöf. Reuters
Írakskur hermaður hóf skothríð á hóp af bandarískum hermönnum í Írak á þriðjudeginum. Við það særðust níu og tveir létu lífið, en árásarmaðurinn var skotinn til bana.
Hermennirnir tveir eru hinir fyrstu sem falla eftir að tilkynnt var um brottflutning allra hermanna á svæðinu. Þá munu einungis gæsluliðar verða eftir í landinu, en þeir eiga að sjá um að þjálfa írakska her- og lögreglumenn, ásamt því að veita þeim ráðgjöf.
Bandarísku hermennirnir voru að vernda hershöfðingja sem var á leið á fund með írökskum herforingjum. Atvikið átti sér stað í herstöð nálægt Tuz Khormato-borg, sem er fyrir norðan höfuðborgina, Bagdad.
Samkvæmt lögregluyfirvöldum í borginni hóf árásarmaðurinn skothríð eftir rifrildi, en frekari upplýsingar voru ekki gefnar um tildrög árásarinnar. Um 4.418 bandarískir hermenn hafa látið lífið í Írak frá innrásinni í landið árið 2003.





Biblían bjargaði lífi hennar: Las fyrir árásarmanninn
Týndir þú skartgripum á höfuðborgarsvæðinu?
Sjáðu allar Super Bowl auglýsingarnar
„Fyrirgefðu, bless“
Breivik krafðist þess að verða látinn laus