ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Hundruð milljóna í arðgreiðslur

Valgeir Örn Ragnarsson valgeir@dv.is
13:55 › 7. september 2010
Friðrik Hallbjörn og Árni Hauksson.

Friðrik Hallbjörn og Árni Hauksson.

Viðskiptafélagarnir Árni Hauksson og Friðrik Hallbjörn Karlsson greiddu sér samtals 450 milljónir króna í arð á síðasta ári úr eignarhaldsfélögum sínum. Árni og Friðrik Hallbjörn eiga saman eignarhaldsfélagið Vogabakka, en í lok hrunársins 2008 var eigið fé félagsins um 9 milljónir evra, miklu meira en skuldir félagsins. Árni og eiginkona hans, Inga Lind Karlsdóttir, eru að byggja sér tæplega 800 fermetra einbýlishús á Arnarnesi.

Árni og Friðrik Hallbjörn eru vafalaust í hópi ríkustu Íslendinganna nú um stundir. Þeir eiga og reka saman eignarhaldsfélagið Vogabakka sem stendur mjög vel fjárhagslega. Í lok hrunársins 2008 nam eigið fé félagsins um 9 milljónum evra, sem samsvarar um 1.360 milljónum króna á núgildandi gengi. Samkvæmt ársreikningi félagsins fyrir árið 2008 var staða þess afskaplega góð, þrátt fyrir að flestir aðrir fjárfestar stæðu á brauðfótum á þeim tíma. Skuldir félagsins voru aðeins brot af eigin fé þess, eða um 660 þúsund evrur, sem samsvarar tæpum 100 milljónum króna.

Högnuðust á sölu Húsasmiðjunnar
Þeir Árni og Friðrik Hallbjörn voru um nokkurra ára skeið meirihlutaeigendur í Húsasmiðjunni í gegnum eignarhaldsfélögin Múla og Vogabakka. Árið 2005 seldu félagarnir hins vegar hlut sinn í Húsasmiðjunni til félags í eigu Baugs, sem þá eignaðist Húsasmiðjuna að fullu. Ekki er ljóst hve mikið Baugsmenn borguðu fyrir Húsasmiðjuna, en kaupverðið á sínum tíma var trúnaðarmál. Hugsanlegt er að kaupverðið hafi verið í kringum þrjá milljarða, samkvæmt heimildum DV.

Bæði Árni og Friðrik Hallbjörn gegndu lykilstörfum hjá Húsasmiðjunni í eigendatíð sinni. Árni var forstjóri og Friðrik Hallbjörn var framkvæmdastjóri verslunarsviðs. Þegar þeir seldu sig út úr Húsasmiðjunni létu þeir báðir af störfum hjá félaginu.

Nánar má lesa um þetta mál í DV í dag


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.