Við erum enn á hæsta viðbúnaðarstigi vegna eldgossins í Eyjafjallajökli fyrr á árinu. Varkárni ræður því fremur en einhver yfirvofandi hætta. Mynd: Íris Sæmundsdóttir
Þrátt fyrir að eldgosinu í Eyjafjallajökli hafi að mestu lokið í maí síðastliðnum er Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra enn með hæsta viðbúnaðarstig vegna gossins. Það ræðst í fyrsta lagi í næstu viku hvort viðbúnaðarstigið verði lækkað eftir að Almannavarnir hafa ráðfært sig við vísindamenn. Þar á bæ eru menn varkárir og vilja ekki lækka viðbúnaðarstigið nema að vissa sé fyrir því að allt sé búið.
Breska veðurstofan, UK Met Office, er farin að þrýsta á afstöðu Almannavarna vegna elgossins.
Ágúst Gunnar Gylfason hjá Almannavörnum segir að menn séu varkárir og farið sé hægt í að breyta viðbúnaðarstiginu. Sagan segi einfaldlega að eldfjöll geti tekið sér goshlé og þegar Eyjafjallajökull gaus 1821-1823 hafi eldstöðin einmitt tekið svona langt hlé.
„Það er ekki vegna þess að við eigum von á því að eitthvað meira sé í vændum. Heldur bara til að vera viss,“ segir Ágúst Gunnar í samtali við DV.is.
Hann segir að í næstu viku muni Almannavarnir ráðfæra sig við vísindamenn og fara yfir stöðuna., hvað sé búið að vera að gerast undanfarnar vikur og í framhaldi af því verði afstaða tekin til viðbúnaðarstigsins.
Hvað fyrirspurnir Met Office nú varðar segir Ágúst að þeir séu að spyrjast fyrir um stöðuna nú vegna þess að þeir hafi það hlutverk að gera öskufallsspá þegar gos eru í gangi. „Þeir líta svo á að eldgosi sé ekki lokið fyrr en þrír mánuðir eru liðnir frá því að einhverjir atburðir hafi átt sér stað í fjallinu.“
„Það eru að verða þrír mánuðir síðan eitthvað gerðist í eldfjallinu síðast, það var um miðjan júní sem einhver púff komu upp úr fjallinu. Þeir skrá þetta vandlega hjá sér í Bretlandi og því eru þeir að senda þessa fyrirspurn,“ bendir Ágúst Gunnar á.
Verði einhver breyting á viðbúnaðarstiginu segir Ágúst að almenningi og fjölmiðlum verði gerð grein með því líkt og þegar gosið stóð sem hæst.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir