Hjónabandi Wayne og Coleen Rooney virðist með öllu lokið ef marka má bresku götublöðin í dag. Knattspyrnumaðurinn er sakaður um að hafa keypt sér þjónustu vændiskonunnar Jennifer Thompson í allt að sjö skipti á meðan Coleen var ólétt af fyrsta barni þeirra hjóna.
The Sun greinir frá því í dag að Wayne sé nú óvelkominn á heimili tengdaforeldra sinna eftir að málið kom upp. Coleen er flúin af heimili þeirra hjóna og dvelur þessa dagana hjá foreldrum sínum á meðan eiginmaður hennar er staddur í Sviss með enska landsliðinu.
Heimildir The Sun herma að Rooney hafi boðist til að draga sig úr landsliðshópi Englendinga til að sættast við eiginkonuna en skilaboðin sem hann hafi fengið voru:
„Ég vil ekki hitta þig. Farðu bara og spilaði fótbolta. Ég þarf ekki á þér að halda lengur.“
Heimildir nærri þeim hjónum segir að Rooney hafi sagt henni frá því að breskt dagblað ætlaði að birta grein um vændiskaup hans. Hann hafi ekki reynt að koma sér undan ábyrgð. „Hann sagði að fréttin væri sönn. Hann kvaðst aðeins óska þess að þetta hefði aldrei gerst,“ hefur The Sun eftir vini þeirri hjóna.
Foreldra Coleen, þau Tony og Colette, eru strangtrúaðir kaþólikkar og það mun hafa tekið þau langan tíma að fyrirgefa Rooney fyrri vændisskandal sinn þegar hann var aðeins 16 ára gamall í Liverpool. En nú séu leikmaðurinn og dóttir þeirra gift með barn og slíkt verði ekki liðið.
Á laugardaginn mun Rooney hafa drekkt sorgum sínum á hótelherbergi eftir sannfærandi sigur Englands á Búlgaríu. Hann pantaði kippu af bjór upp á hótelherbergi sitt sem enska knattspyrnusambandið þurfti að veita sérstakt leyfi fyrir. Fabio Capello leyfir leikmönnum ekki að panta áfengi upp á herbergi en svo virðist sem Rooney hafi fengið grænt ljós á laugardaginn.
Í gær lýsti Capello því yfir að Rooney myndi vera í byrjunarliði enska landsliðsins í leiknum gegn Sviss í kvöld, þrátt fyrir skandalinn.
Rooney fór víst ekki út af hótelherbergi sínu að óþörfu í Basel í gærkvöldi. Hann mun hafa trúað vinum sínum fyrir því að hann teldi að hjónabandið væri búið.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
