ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Castro: Gyðingum er kennt um allt

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:20 › 7. september 2010
Fidel Castro átti nýverið samtal við bandarískan blaðamann, þar sem hann tíundaði hættuna á kjarnorkustyrjöld í heiminum.

Fidel Castro átti nýverið samtal við bandarískan blaðamann, þar sem hann tíundaði hættuna á kjarnorkustyrjöld í heiminum. Reuters

  • Mahmoud Ahmadinejad forseti Íran, leyfir sér að efast um að helförin hafi átt sér stað.

    Mahmoud Ahmadinejad forseti Íran, leyfir sér að efast um að helförin hafi átt sér stað. Reuters

Fidel Castro óttast að Ísrael og Bandaríkin muni að endingu lenda í stríðsátökum við Íran. En hann telur að fáir geri sér grein fyrir því hversu mikil hætta stafar að Íran, því íranir gætu valdið kjarnavopnastyrjöld.

Hann segir að eina vonin til að afstýra stríði á milli landanna, og að tryggja frið, sé að öll herveldi heimsins eyði kjarnavopnum sínum samtímis. Ísrael mun aldrei verða öruggt nema það eyði kjarnavopnum sínum og slíkt hið sama á við um öll önnur herveldi. Fagurt markmið, en ekki raunhæft, segir Castro.

„Menn halda að þeir geti hamið sig, en Obama gæti brugðist of hart við aðgerðum Íran, sem myndi að endinguleiða af sér kjarnorkustyrjöld,“ bætir Castro við.

Hann gagnrýnir forseta Írans, Mahmoud Ahmadinejad, fyrir að halda því fram að helförin hafi aldrei átt sér stað. Friður verði mun frekar tryggður með því að viðurkenna það harðræði sem gyðingar hafa þurft að sæta í gegnum söguna. „Þeir kenndu gyðingunum um að hafa drepið guð!“ sagði Castro, og bætti við að slík fáfræði hefði einnig verið við lýði í sínu landi. Gyðingum er kennt um allt segir Castro „en múslímum er aldrei kennt um neitt“.

Þetta kemur fram í viðtali sem dagblaðið „The Atlantic“ tók við hann. Castro hefur farið mikinn í fjölmiðlum að undanförnu, en nýverið sagði hann í samtali við litháískan rithöfund að skjöl á Wikileaks-vefnum hefðu sannað það að Osama Bin-Laden hefði verið á mála Bandarísku leyniþjónustunnar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.