Björn Valur segir að starfshópurinn sé sammála um að heimild til framsals aflamarks þurfi að þrengja frá því sem nú gildir, afnema eða eingöngu heimila skipti á aflaheimildum. Mynd DV
Björn Valur Gíslason, þingmaður vinstri grænna og fulltrúi flokksins í starfshóp um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða, segir að tillögur starfshópsins séu til þess fallnar að skapa sátt um fiskveiðistjórnunarkerfið.
Samkvæmt tillögum hópsins verður svokölluð samningaleið farin í stað fyrningarleiðar. Með samningaleiðinni verður það tryggt í stjórnarskrá að sjávarauðlindin sé í eigu íslensku þjóðarinnar. „Um þetta er þverpólitísk niðurstaða allra flokka á Alþingi og fullt samkomulag allra hagsmunaaðila í sjávarútvegi – nema LÍÚ,“ skrifar Björn Valur á heimasíðu sinni.
Hann segir alla í hópnum, nema fulltrúa Hreyfingarinnar, vera sammála um það að eigendur auðlindarinnar, íslenska þjóðin, eigi að geta gert tímabundna afnota- eða nýtingasamninga við þá sem vilja stunda fiskveiðar gegn gjaldi og tilteknum öðrum skilyrðum. „Með þessum hætti er verið að fara álíka leið og farið er með aðrar sameiginlegar auðlindir, þ.e. eignarhaldið sé skýrt og samningar séu gerðir um afnot,“ segir hann.
„Starfshópurinn er sammála um að heimild til framsals aflamarks þurfi að þrengja frá því sem nú gildir, afnema eða eingöngu heimila skipti á aflaheimildum. Ef framsal verði leyft fari það fram með opinberum hætti þannig að aðgangur allra að heimildum verði jafn,“ skrifar hann.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir