ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Annar þingmaður: Jóhanna stríðir gegn náttúrunni

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:14 › 7. september 2010
Jóhanna og Jónína ögra fjölda fólki með heimsókinni.

Jóhanna og Jónína ögra fjölda fólki með heimsókinni.

Alfred Olsen, sem er formaður Sambandsflokksins í Færeyjum er sammála fyrri ummælum um að kynhneigð Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra sé ónáttúruleg. Þá hefur formaður Miðflokksns, Jenis av Rana látið svipuð ummæli falla.

Alfred segir að skoðanir um heimsókn Jóhönnu séu breytilegar á meðal Færeyinga, og að Høgni Hoydal þingmaður hafi ekki farið með rétt mál þegar hann sagði í fjölmiðlum að heimsókn Jóhönnu og konu hennar Jónínu sé gleðiefni fyrir langflesta Færeyinga.

Sambandsflokkurinn, sem Alfred fer með forystu í er flokkur Kaj Leo Johannesen, lögmanns Færeyja. Það var lögmaðurinn sem bauð Jóhönnu í heimsókn til Færeyja. Þá segir Alfred að það komi sér ekki á óvart að heimsókn Jóhönnu ögri fjölda Færeyinga, þar sem að kynhneigð hennar „stríði gegn náttúrunni.“

Í kvöld munu Jóhanna og kona hennar, Jónína, snæða kvöldverð með Kaj Leo lögmanni, og forrystumönnum í Færeyskum stjórnmálum. Jenis av Rava hefur þó afboðað komu sína, en hann sagði að kynhneigð Jóhönnu væri ástæðan fyrir því, ásamt því að hann færi vanalega ekki út án konunnar sinnar.

Frétt um ummæli Alfreds má sjá á Færeysku hér.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.