ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Ætlar að brenna Kóraninn á bálkesti

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:12 › 7. september 2010
Mótmælt var í Kabúl á mánudaginn vegna fyrirhugaðrar brennu prestsins Terry Jones.

Mótmælt var í Kabúl á mánudaginn vegna fyrirhugaðrar brennu prestsins Terry Jones. Reuters

Bandaríski presturinn Terry Jones hyggst brenna allnokkur eintök af íslamska trúarritinu Kóraninum, til þess að minnast hryðjuverkaárásanna á tvíburaturnana 11. september. Óttast er hörð viðbrögð á meðal múslima í heiminum vegna brennunnar.

Bandaríski hershöfðinginn David Petraeus sagði að brennan gæti aukið andúðina á Bandaríkjamönnum meðal múslima, og að hún gæti stofnað lífum hermanna atlantshafsbandalagsins í hættu.

„Þetta gæti sett hermennina í hættu og gæti haft slæm áhrif á afrakstur okkar fram að þessu.“ sagði Petraeus hershöfðingi við Bandaríska fjölmiðla.

Fréttir af fyrirhugaðri brennunni hafa borist til Indónesíu og Afganistan, en þar hefur henni verið mótmælt harðlega. Þá brenndu um 500 manns líkneski af Terry Jones í Kabúl á mánudaginn, og hrópuðu slagorð á borð við „lengi lifi Íslam“ og „dauðinn hirði Ameríku“.

En presturinn hyggst ekki hætta við brennuna, þrátt fyrir beiðni um það frá Hvíta húsinu og Nató. Hann segist ætla að biðja fyrir því að allt fari á besta veg, en hann og söfnuður hans hafi þegar gert upp hug sinn.

Blóðug mótmæli brutust út í Afganistan árið 2008, þegar fréttir bárust um landið að Bandarískur hermaður í Írak hafi skotið eintak af Kóraninum ítrekað.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.