Herjólfur átti upphaflega ekki að vera notaður í siglinguna heldur ný og hentugri ferja sem aldrei var farið í að kaupa vegna hrunsins.
Efnisburður í innsiglingunni í Landeyjahöfn hægði á Herjólfi í gærkvöldi og ákvað skipstjórinn í kjölfarið að sigla ekki í morgun. Siglingastofnun segir að eldgosið í Eyjafjallajökli hafi sett strik í reikninginn varðandi höfnina.
„Þá söfnuðust milli Landeyjahafnar og ósa Markarfljóts mikið af gosefni sem í óhagstæðum ölduáttum geta að hluta til borist inn í höfnina. Almennt ríkjandi ölduáttir að suðvestan og vestan myndu hins vegar flytja gosefnið austur og valda þá ekki erfiðleikum í höfninni,“ segir í tilkynningu Siglingastofnunar.
Þá segir að vitað hafi verið að með áframhaldandi siglingu Herjólfs myndu frátafir verða meiri en með nýrri og hentugri ferju sem undirbúningur Landeyjahafnar gerði frá upphafi ráð fyrir að yrði keypt. Sú hefði ekki rist dýpra en 3,3 metrar. En með efnahagshruninu hafi þessar ráðagerðir komist í uppnám og fallið var frá kaupum á nýju skipi.





Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“