ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 3m/s E

„Það eru allir frekar æstir“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:32 › 6. september 2010
Þórhallur Heimisson segist ekki vera á sömu línu og sóknarpresturinn Örn Bárður Jónsson sem sakar fjölmiðla um einelti í garð kirkjunnar.

Þórhallur Heimisson segist ekki vera á sömu línu og sóknarpresturinn Örn Bárður Jónsson sem sakar fjölmiðla um einelti í garð kirkjunnar. Mynd DV

„Það eru allir frekar æstir og taka kannski svolítið sterkt til orða,“ segir Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfjarðarprestakalli, um þá fullyrðingu að fjölmiðlar hafi lagt kirkjuna í einelti vegna umfjöllunar um viðbrögð kirkjunnar í kjölfar málefna sem snúa að Ólafi Skúlasyni.

Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur í Neskirkju, lét þessi ummæli falla á sunnudag í guðsþjónustu sem var útvarpað á Rás 1. „Viðbrögð yfirstjórnar kirkjunnar hafa því miður verið klaufaleg. Auðvitað getur maður orðið reiður og sagt þetta vera einelti en á móti kemur að við getum fengið að tjá okkur úti um allt,“ segir Þórhallur.

Örn Bárður sagði fjölmiðla hafa kynt undir því að fólk segði sig úr kirkjunni en Þórhallur segist ekki vera á þeirri línu. „En ég skil alveg hvað hann er að fara. Málið er hins vegar mun flóknara en það,“ segir Þórhallur sem segir fjölmiðla hafa greint reglulega frá því hversu margir hafi sagt sig úr þjóðkirkjunni. „Svo getur maður spurt sig: Af hverju er verið að fjalla um það? Og það er af því þessi mál hafa komið upp og yfirstjórnin hefur ekki staðið sig nægjanlega vel við að svara.“ Hann segir það vera fullsterkt að segja þetta vera einelti af hálfu fjölmiðla. „Ég held að þetta sé frekar spurning um hvort kemur á undan, hænan eða eggið.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.