ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 3m/s E

Tekjuhalli 30 milljarðar á öðrum ársfjórðungi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:08 › 6. september 2010

Tekjuhalli hins opinbera var 30 milljarðar króna á öðrum ársfjórðungi samkvæmt Hagtíðindum Hagstofu Íslands. Tekju halli á sama tímabili í fyrra var 42 milljarðar.

Sem hlutfall af landsframleiðslu ársfjórðungsins mældist tekjuhallinn 8,0% og sem hlutfall af tekjum hins opinbera 18,6%. Á sama ársfjórðungi 2009 mældist tekjuhallinn 11,1% af landsframleiðslu og 28,3% af tekjum hins opinbera. Þessi bætta afkoma skýrist fyrst og fremst af auknum skatttekjum sem hækkað hafa verulega milli umræddra tímabila á sama tíma og dregið hefur verulega úr fjárfestingu hins opinbera eða um tæplega þriðjung.

Heildartekjur hins opinbera námu 162 milljörðum króna á 2. ársfjórðungi 2010 samanborið við 147 milljarða króna á sama tíma 2009 og hækkuðu um 10,2% milli ára. Tekjuhækkunin skýrist fyrst og fremst af 6,6 milljarða króna auknum tekjum af tryggingagjöldum milli ára og um 5,7 milljarða króna meiri tekjum af tekjusköttum. Á sama tíma jukust heildarútgjöld hins opinbera um 2,3% milli árs-fjórðunganna eða úr tæplega 189 milljörðum króna 2009 í ríflega 193 milljarða króna 2010. Útgjaldahækkunin skýrist að mestu af 8,6 milljarða króna auknum vaxtakostnaði hins opinbera og 3,7 milljarðar króna vexti í kaupum á vöru og þjónustu, en á móti vegur 4,4 milljarðar króna minni fjárfestingarkostnaður og 3,7 milljarða króna lækkun í félagslegum tilfærslum til heimilanna.

Heildarskuldir ríkissjóðs námu 1.636 milljörðum króna í lok 2. ársfjórðungs 2010 eða sem samsvarar 106% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Að teknu tilliti til peninga¬legra eigna var hrein peningaleg eign ríkissjóðs, þ.e. peningalegar eignir umfram skuldir, neikvæð um 546 milljarða króna í lok þessa ársfjórðungs eða sem svarar til 35,4% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Til samanburðar var hrein peningaleg eign ríkissjóðs neikvæð um 27,5% af landsframleiðslu á sama ársfjórðungi 2009 en aftur jákvæð um 2,5% af landsframleiðslu á þeim ársfjórðungi 2008. Samkvæmt þessu hefur hrein peningaleg eign ríkissjóðs því versnað um 583 milljarða króna á tveggja ára tímabili eða um 37,8% af landsframleiðslu.

Heimild: Hagstofa.is



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.