„Við vorum búin að plana ýmislegt sem tengdist framtíð okkar saman. Við vorum virkilega ástfangin og mjög hamingjusöm,“ segir Hildur meðal annars.
„Það var margt sem benti til þess að hann hefði gert þetta. Svo var líka svo margt sem benti til þess að hann hefði ekki gert þetta eins og til dæmis það að hann leyfði mér að labba inn eftir að hann skutlaði mér heim, og hann sendi mér samúðarskeyti á Facebook,“ segir Guðlaug Matthildur Rögnvaldsdóttir aðspurð um það hvort játning Gunnars Rúnars Sigurþórssonar á morðinu á Hannesi Þóri Helgasyni, unnusta hennar, hefði komið henni á óvart.
Guðlaug Matthildur eða Hildur eins og hún er kölluð af vinum sínum segist undanfarið hafa verið í ákveðinni afneitun og ekki viljað trúa því að Gunnar Rúnar Sigurþórsson, félagi hennar frá því í grunnskóla, hafi myrt Hannes. Gunnar Rúnar hefur játað á sig verknaðinn. Nánir vinir Hildar og fjölskylda telja að henni hafi verið byrluð ólyfjan þessa örlagaríku nótt, þar sem hún man ekkert frá því um hálf fjögur aðfaranótt 15. ágúst.
Rannsókn lögreglu hefur leitt í ljós að Hannes var myrtur einhverntíman á milli klukkan fimm og tíu að morgni sunnudagsins 15. ágúst. Gunnar Rúnar keyrði Hildi að hennar sögn heim til hans sama morgun, en þar vaknaði hún klukkan ellefu án þess að vita hvar hún væri. Hún segir að Gunnar Rúnar hafi ekki hegðað sér á neinn hátt öðruvísi en vanalega. Hann hafi verið vinalegur þegar hann keyrði hana að heimili hennar og Hannesar, og meðal annars boðið henni að fylgja henni inn í húsið.
„Hann er bara mjög mikill einfari, saklaus og mjög almennilegur strákur, ég hefði aldrei trúað þessu uppá hann nema ég fengi að sjá það svart á hvítu,“ segir Hildur meðal annars þegar hún lýsir Gunnari Rúnari.
Í DV í dag er ítarlegt viðtal við Hildi þar sem hún lýsir atburðum þessa örlagaríku daga í lífi hennar.





Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“