Laganemar háskólanna höfðu fyllt öll sæti í dómssal Hæstaréttar þegar mál um hvaða vextir gengistryggð lán eiga að bera var tekið fyrir í morgun. Fulltrúar fjölmiðla komust ekki fyrir í salnum en salnum hafði verið lokað þegar þá bar að dyrum og þeim ekki hleypt inn.
Málflutningur í málinu fer fram í dag og er úrskurðar að vænta eftir hálfan mánuð. Gert er ráð fyrir því að málflutningurinn í dag taki um þrjá tíma og verði lokið í kringum hádegi.
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði fyrr í sumar að gengistryggðu lánin ættu að bera óverðtryggða vexti Seðlabanka Íslands. Það er í samræmi við tilmæli Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins sem send voru til fjármálafyrirtækja í sumar.
Málið hefur vakið mikla athygli og var strax ljóst þegar málið var tekið fyrir í Héraðsdómi að því yrði áfrýjað til Hæstaréttar, sama hvaða niðurstaða fengist þá í málið.
Háskólanemar fylltu dómssal Hæstaréttar
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.





Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“