Tveir framsóknarmenn í Skagafirði saka Guðmund Steingrímsson, þingmann Framsóknarflokksins, um þjónkun við ríkisstjórnina í ESB-málinu. Bréf, sem þeir sendu Guðmundi nýlega, var einnig komið í hendur annarra þingmanna Framsóknarflokksins. Í bréfinu, sem DV hefur undir höndum, er Halldór Ásgrímsson sakaður um að hafa beitt bolabrögðum til að ná völdum í flokknum og er Guðmundur átalinn fyrir að beita sams konar vinnubrögðum gegn formanni sínum.
Tveir samvinnu- og framsóknarmenn í Skagafirði, Gunnar Oddsson í Flatatungu, 76 ára, og Sigtryggur Jón Björnsson í Varmahlíð, 72 ára, saka Guðmund Steingrímsson alþingismann um að grafa undan Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins.
Gunnar og Sigryggur sendu Guðmundi Steingrímssyni bréf þann 15. ágúst sem DV hefur undir höndum. Gunnar kannast við að hafa sent Guðmundi Steingrímssyni bréfið og kveðst hafa sent honum bréf áður. „Ég aðhylltist stefnu Framsóknarflokksins eitt sinn. Fyrir okkur er þetta háborin alvara,“ segir hann.
DV hefur heimildir fyrir því að bréf Gunnars og Sigtryggs hafi borist öllum þingmönnum flokksins þótt það sé stílað á Guðmund.
Guðmundur segist í DV í dag ætla að svara bréfinu von bráðar enda sé hann ósammála mörgu sem þar kemur fram.
Lesa má nánar um málið og bréfið til Guðmundar í DV í dag





Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“