ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.6° 10m/s S

Færeyskur þingmaður segir Jóhönnu ögrandi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:50 › 6. september 2010
Heimsókn Jóhönnu Sigurðardóttir er bein ögrun, segir þingmaðurinn Jenis av Rana.

Heimsókn Jóhönnu Sigurðardóttir er bein ögrun, segir þingmaðurinn Jenis av Rana.

Hinn trúaði Færeyski þingmaður, Jenis av Rana hyggst ekki þiggja boð frá lögmanninum í Færeyjum um kvöldverð með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og konu hennar Jónínu. Hann segir samband þeirra ekki eðlilegt, og að það brjóti í bága við lög bíblíunnar.

Enn fremur segir hann heimsókn Jóhönnu og maka hennar vera beinlínis ögrun, að því er fram kemur á Færeyska fréttavefnum Vagaportalurin. Nei takk segir þingmaðurinn, en hann segist ekki vanur því að fara út á kvöldin án konunnar hvort sem er.

Fréttina má sjá á Færeysku hér.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?