Brasilísk eiginkona breska þingmannsins Mike Weatherley gekk í gildru breska dagblaðsins Sunday Mirror sem í gær birti frétt sem afhjúpar hana sem starfandi vændiskonu. Weatherley kveðst ekki hafa hugmynd um að eiginkona hans hafi verið að starfa sem vændiskona en þingmaðurinn fullyrðir að þau hafi skilið að borði og sæng í febrúar síðastliðnum.
Weatherley (53) er einn af nýju þingmönnum breska Íhaldsflokksins sem komst til valda undir stjórn Davids Cameron fyrr á þessu ári. Eiginkona hans Carla, fylgdi honum á hinar ýmsu samkomur í aðdraganda kosninganna í Bretlandi og aðeins eru tveir mánuðir síðan hún sást heimsækja þinghúsið.
70 pund fyrir klukkustundina
En Sunday Mirror greindi frá því í gær að hin 39 ára gamla Carla hafi undanfarið starfað á þremur „nuddstofum“ þar sem hún hefur gengið undir nöfnunum Bea, Adriana og Bianca. Mirror greinir frá því að hún hafi starfað sem vændiskona í heimalandi sínu áður en hún giftist Weatherley fyrir 7 árum síðan. Dulbúinn blaðamaður Mirror náði henni á mynd þar sem hún strippar fyrir hann. Hún viðurkennir við hann að starfa á þremur vændishúsum og klukkutíminn hjá henni kostar 70 pund.
Þingmaðurinn grét við fréttirnar
Blaðamenn gengu á Weatherley í gær eftir uppljóstrun Sunday Mirror og hann var í tárum þegar hann svaraði spurningum breskra blaðamanna.
Hann kvaðst ekki hafa hugmynd um að eiginkona sín hafi verið að selja aðgang að líkama sínum en fullyrti að þau væru enn góðir vinir þrátt fyrir aðskilnaðinn.
„Þessar fréttir eru sláandi og ég er enn að reyna að ná utan um þetta. Ég get þó sannað að við höfum slitið samvistum í febrúar ef til þarf.“
„Ég mun ræða við Cörlu í dag (gær) ég þarf bara tíma til að vera með fjölskyldu minni,“ sagði hinn þriggja barna faðir.
Heimildarmenn lýsa Weatherley sem svolitlum glaumgosa sem sé kvensamur mjög. Skandallinn þykir mikið áfall fyrir þingmanninn sem og leiðtoga Íhaldsflokksins, David Cameron.





Madonna fær ekki krónu fyrir að koma fram á Super Bowl
Um hvað ræðir FBI á leynilegum fundum? – Hlustaðu hér
Kynlíf í starfslýsingunni
Almennir borgarar dæma Breivik
Börn leggja á sig mörg þúsund kílómetra göngu í leit að betra lífi