Karlmaður frá New York-borg í Bandaríkjunum lifði af 39 hæða fall. Karlmaður féll af þaki fjölbýlishúss í borginni og lenti á kyrrstæðum bíl. Sjónarvottar og lögrega segja manninn hafa reynt að fremja sjálfsvíg þegar hann lét sig falla af byggingunni á þriðjudag. Karlmaðurinn, hinn 22 ára gamli Thomas Margill, endaði í aftursætinu á Dodge Charger, eftir að hafa farið í gegnum afturrúðu bílsins.
Báðir fætur hans brotnuðu við fallið og er hann enn talinn í lífshættu að sögn lögreglu. Eigandi bílsins segist þó sannfærður um að maðurinn hafi lifað af vegna bænabands sem hann geymir í bílnum. Hann er ekki eini New York-búinn sem hefur lifað af jafn hátt fall. Gluggaþvottamaðurinn Alcides Moreno féll niður fjörutíu og sjö hæðir árið 2007 í New York og lifði fallið af.





Madonna fær ekki krónu fyrir að koma fram á Super Bowl
Um hvað ræðir FBI á leynilegum fundum? – Hlustaðu hér
Kynlíf í starfslýsingunni
Almennir borgarar dæma Breivik
Börn leggja á sig mörg þúsund kílómetra göngu í leit að betra lífi