Ríkisendursksðun varaði Árna Sigfússon við vanhæfi í skýrslu árið 2008 um Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar
Rík tengsl eru milli sölu á fyrrverandi eignum Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli, Sparisjóðs Keflavíkur, Keilis, bæjarstjórnar Keflavíkur og fjármálaráðuneytisins í tíð Árna M. Mathiesens. Sömu mennirnir sátu og sitja margir enn í stjórnum félaga, í bæjarstjórn Reykjanesbæjar og stjórn sparisjóða og höfðu gilda þræði inn í fjármálaráðuneytið. Þeir mynduðu tengslanet þar sem saman ófust pólitískar ákvarðanir, einkahagsmunir og aðgangur að fé í fjármálastofnunum.
Ríkisendurskoðun hefur áréttað það mat sitt að forsvarsmenn Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs á Keflavíkurflugvelli, hafi farið á svig við heimildir þegar framlög úr ríkissjóði voru notuð að hluta til reksturs einkarekinna námsbrauta við skólann á árunum 2008 og 2009.
Athugasemdir Ríkisendurskoðunar voru gerðar eftir að Hjálmar Árnason, skólameistari Keilis, gagnrýndi skýrslu Ríkisendurskoðunar harðlega í fjölmiðlum.
„Að mati Ríkisendurskoðunar felur þetta í sér skýlaust brot á fyrrnefndum samningum og hefur ráðuneytið lýst sig sammála þeirri túlkun,“ segir í athugasemd ríkisendurskoðanda.
Í árslok 2009 nam uppsafnaður halli af rekstri Keilis 136 milljónum króna en heildarskuldir um 463 milljónum króna. Samkvæmt upplýsingum frá Keili er áætlaður rekstrarafgangur þessa árs 10 milljónir króna en ljóst er að afborganir langtímaskulda munu nema um 60 milljónum króna á árinu.
Ríkisendurskoðun bendir á að Keilir hafi verið einn um hituna við að komast yfir byggingar undir starfsemi sína og þær hafi fengist keyptar fyrir aðeins tæpan þriðjung af matsverði bygginganna af Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar. Þróunarfélagið hafði það verkefni með höndum fyrir ríkið að einkavæða eða selja byggingar og önnur þau verðmæti sem Bandaríkjaher gaf íslenska ríkinu þegar hann yfirgaf landið fyrir fullt og allt í október árið 2006. Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, situr í stjórn Þróunarfélagsins og situr enn.
Jafnframt er hann stjórnarformaður Keilis. Alla tíð frá því Bandaríkjaher lét eignirnar í hendur ríkisins og þar til þær höfðu að mestu verið seldar var Böðvar Jónsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar og flokksbróðir Árna, aðstoðarmaður Árna M. Mathiesens, þáverandi fjármálaráðherra. Árni Mathiesen hafði yfirumsjón með einkavæðingu eignanna til 8. maí 2007. Þetta var skömmu fyrir þingkosningarnar og þá sagði Árni sig frá því að þurfa að undirrita alla kaupsamninga. Ljóst var á þeim tíma að Þorgils Óttar Mathiesen, bróðir hans, var meðal kaupenda að eignum á Keflavíkurflugvelli.





Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“