Lögreglan bíður enn eftir niðurstöðum DNA-rannsókna á lífsýnum sem send voru til rannsóknar í Svíþjóð í tengslum við rannsókn á morðinu á Hannesi Þór Helgasyni sem fannst látinn á heimili sínu í Hafnarfirði 15. ágúst síðastliðinn.
Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn hefur áður lýst því yfir að málið teljist að mestu upplýst og stutt sé í að því verði vísað til ríkissaksóknara.
Gunnar Rúnar Sigurþórsson, sem játað hefur að hafa myrt Hannes Þór, var á föstudaginn úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 22. október. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 26. ágúst.
Nokkrar vikur eru síðan lífsýni sem tekin voru af vettvangi, af meintu morðvopni og blóði sem talið er hafa fundist á skóm hins grunaða voru sendar til Svíþjóðar til rannsóknar. Lögreglunni bárust í mánuðinum bráðabirgðaniðurstöður úr rannsókn sinni á vettvangi morðsins en enn er beðið eftir lokaskýrslum að utan.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Komu fórnarlambi líkamsárásar ekki til aðstoðar
Stjórnmálafræðingur: „Þóra ekki nógu sýnileg“
Sævar fékk rúm fjögur ár í fangelsi
Ólafur flýgur framhjá Þóru
„Barátta Hönnu Lilju er barátta mín“
