ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S

Siðfræði kennd í endurskoðun

13:21 › 3. september 2010
Páll Skúlason heimspekingur er nú kenndur í fyrsta skipti í mastersnámi í endurskoðun við Háskóla Íslands.

Páll Skúlason heimspekingur er nú kenndur í fyrsta skipti í mastersnámi í endurskoðun við Háskóla Íslands.

Fyrsta kennslustundin í mastersnámi í endurskoðun í Háskóla Íslands á miðvikudaginn fór í að kenna nemendunum siðfræði. Þetta er í fyrsta skipti sem mastersnemum í endurskoðun er kennd siðfræði og er um að ræða viðbrögð við íslenska efnahagshruninu og skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, samkvæmt heimildum DV. Endurskoðendur bankanna og stórra fyrirtækja fá harða útreið í skýrslunni.

Í tímanum voru lesnar greinar eftir Pál Skúlason, Hvað er siðfræði?, Garðar Gíslason, Um lög og siðferði, og Sigurð Kristinsson, Skyldur og ábyrgð starfsstétta. „Þessu var breytt eftir hrun, það er kominn nýr tíðarandi með breyttum áherslum. Þetta er nýbreytni, rannsóknarskýrslan hefur fellt ákveðna áfellisdóma yfir ákveðnum aðilum, endurskoðendum, regluvörðum bankanna og starfsmönnum í áhættustýringu,“ segir heimildarmaður DV en meðal þess sem mun hafa verið rætt í tímanum á miðvikudaginn var hvatakerfið í íslensku bönkunum fyrir hrunið.

Siðfræðikennslan í endurskoðunarnáminu er þó aðeins bundin við fyrstu tímana. Eftir það munu endurskoðunarnemarnir fara að læra um reikningshald og annað sem kennt er í slíku námi almennt. Siðfræðikennslan á þó augljóslega að vekja nemendurna til vitundar um siðferði og rétta og ranga breytni í viðskipta- og efnahagslífinu svo þeir séu betur undir það búnir að glíma við siðferðisspurningar þegar þeir koma út í atvinnulífið.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.