ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.0° 9m/s E

Fyrstu niðurstöður úr DNA-rannsókn komnar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:02 › 3. september 2010

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni eru fyrstu bráðabirgðaniðurstöður úr DNA-rannsókn á lífssýnum sem tekin voru á vettvangi morðsins í Hafnarfirði komnar. Niðurstöður munu halda áfram að berast til lögreglunnar þangað til lokaskýrsla með staðfestum niðurstöðum berast til landsins.

Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar, segir niðurstöður DNA-rannsóknar geti skipt sköpun fyrir mál af þessum toga en vill ekki gefa upp hverjar niðurstöður rannsóknirnar eru.

Gunnar Rúnar Sigurþórsson, maður á þrítugsaldri, situr nú í gæsluvarðhaldi vegna gruns lögreglu um aðild hans á málinu. Samkvæmt heimildum voru DNA-sýni úr blóði sem fannst á skóm hans send til rannsóknar. Ekki fást upplýsingar um það hjá lögreglunni hvort að niðurstöður úr þeirri rannsókn séu komnar til lögreglu.

Morðið átti sér stað í Hafnarfirði aðfaranótt sunnudagsins 15. ágúst. Hannes Þór Helgason var þá myrtur á heimili sínu. Gunnar Rúnar, sem grunaður er um morðið, þekkti Hannes og hafði lýst ást sinni á unnustu Hannesar opinberlega.

Friðrik segir að DNA-rannsóknin geti skipt sköpum en ekki verði gefið upp um hvort niðurstöðurnar hafi áhrif á gang rannsóknarinnar að svo stöddu. Bráðabirgðaniðurstöður úr DNA-rannsóknum eru nokkuð nákvæmar og gefa góða mynd af því hvernig loka niðurstöðurnar líta út.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.