ECA Program lítur svo á að íslensk stjórnvöld hafi veitt fyrirtækinu endanlegt starfsleysi. Þetta kemur fram í frétt á vef fyrirtæksins sem birtist í gær. Þar segir að Kristján Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, hafi gefið skipun um það að Flugmálastjórn hefji vinnu við skráningu flugvéla ECA.
Bæði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hafa sagt að endanlegt leyfi hafi ekki verið gefið og að endanleg ákvörðun verði í höndum Ögmundar Jónassonar, sem í gær tók við ráðherraembætti Kristjáns.
Mikill styr hefur verið um fyrirhugaða starfsemi ECA á Íslandi og hafa Vinstri grænir, flokkur Ögmundar og Steingríms, verið á móti starfseminni. Starfsemi ECA felst í rekstri og útleigu vopnalausra herþota sem nýta á í heræfingum erlendra ríkja.
ECA: Við höfum fengið endanlegt starfsleyfi
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir