ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.0° 9m/s E

Dofri vill virkja Þórunni

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:26 › 3. september 2010
  • Dofri Hermannsson Samfylkingarmaður.

    Dofri Hermannsson Samfylkingarmaður.

„Ég er að hugsa um að sækja um einkaleyfi á að virkja Þórunni og reisa bolver!“ skrifar Dofri Hermannsson á Facebook-síðuna sína í dag. Hann vill láta virkja Þórunni Sveinbjarnardóttur, þingkonu Samfylkingarinnar, sem í gær lét þau orð falla að frændi Ægis Þórs Eysteinssonar ætti að hoppa upp í rassgatið á sér. Þórunn baðst í gær afsökunar á ummælunum en þau voru sögð í gríni.

Bolir með ummælum Þórunnar hafa verið gerðir og fást þeir keyptir á internetinu. Dofri bendir á það á Facebook-síðu sinni að Þórunn hafi, með ummælum sínum, skapað störf. „Hugsið ykkur öll þau beinu og óbeinu störf sem svona fyrsta flokks þingmenn skapa!“ skrifar Dofri.

Bolina má nálgast hér.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.