ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Nýr leiðtogi Verkamannaflokksins: Enginn Marxisti

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:47 › 26. september 2010
Ed Miliband er nýkjörinn leiðtogi Verkamannaflokksins í Bretlandi.

Ed Miliband er nýkjörinn leiðtogi Verkamannaflokksins í Bretlandi. Reuters

  • Bræðurnir David og Ed Miliband faðmast. Mjótt var á munum í kosningunum, en þeir sóttust báðir eftir leiðtogasætinu.

    Bræðurnir David og Ed Miliband faðmast. Mjótt var á munum í kosningunum, en þeir sóttust báðir eftir leiðtogasætinu.Reuters

Ed Miliband er nýkjörinn leiðtogi breska Verkamannaflokksins. Hann segist vera fyrst og fremst miðjumaður, en hann hafi alls ekki í hyggju að leiða flokkinn lengra til vinstri.

Mjótt var á munum milli Miliband og bróður hans, David Miliband og þrír aðrir frambjóðendur fylgdu fast á hæla bræðranna. David hefur ekki ákveðið hvort hann muni halda áfram í stjórnmálum eftir ósigurinn, en hann var lengi vel talinn sigurstranglegasti frambjóðandinn.

Árangur Eds Miliband er fyrst og fremst sökum góðra samskipta við forkólfa verkalýðsfélaganna í Bretlandi, en bróðir hans hlaut flest atkvæði úr röðum flokksmeðlima og þingmanna Verkamannaflokksins.

Ed segist þó ekki vera að þjóna verkalýðsfélögunum, þrátt fyrir að þeim sé að þakka að hann hafi verið kosinn. „Ég er minn eigin herra,“ sagði Ed við fréttamann BBC.

Hann segir skattahækkanir skárri valkostur í fjármálum ríkisins heldur en niðurskurður í útgjöldum, en segist þó ekki vera vinstri sinnaður, enda hjálpi slíkir stimplar sjaldan; „Ég er enginn marxisti,“ segir Ed.

Verkamannaflokkurinn fór lengi með völdin í Bretlandi, en breski Íhaldsflokkurinn fór með sigur af hólmi í seinustu kosningum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?