ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.0° 9m/s E

Græddu 200 milljónir á fasteignum hersins

07:00 › 2. september 2010
Runólfur Ágústsson, fyrrverandi rektor Háskólans á Bifröst, skildi eftir sig sviðna jörð í menntafyrirtækinu Keili þegar hann stýrði því, samkvæmt því sem lesa má út úr skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Runólfur Ágústsson, fyrrverandi rektor Háskólans á Bifröst, skildi eftir sig sviðna jörð í menntafyrirtækinu Keili þegar hann stýrði því, samkvæmt því sem lesa má út úr skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Í skýrsla Ríkisendurskoðunar um starfsemi Keilis er gagnrýnin. Greint er frá fjáraustri ríkisins til skólans sem þó hafi ekki leitt til þess að reksturinn hafi staðið undir sér. Meðal þess sem gagnrýnt er í skýrslunni eru viðskipti Keilis með fasteignir bandaríska hersins en skólinn græddi 200 milljónir á þeim á kostnað íslenska ríkisins.

Menntafyrirtækið Keilir í Reykjanesbæ græddi nærri 200 milljónir króna á fasteignaviðskiptum sínum við íslenska ríkið á árunum 2007 og 2008. Um þetta er rætt í gagnrýnni skýrslu embættis Ríkisendurskoðunar sem gerð var opinber á þriðjudaginn. Fasteignaviðskiptin eru hluti af viðskiptum Keilis sem stofnunin gagnrýnir nokkuð harkalega í skýrslunni.

Í viðskiptunum keypti Keilir mennta- og leikskóla á svæði varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli af Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar á verði sem var einungis 30 prósent af matsverði. Skólarnir höfðu áður verið eign bandaríska hersins en hann gaf íslenska ríkinu þá, ásamt öllum fasteignum á svæðinu, þegar hann yfirgaf Ísland fyrir fjórum árum. Keilir seldi eignarhaldsfélaginu Fasteigna ehf. svo áðurnefnda skóla ári síðar og innleysti áðurnefndan hagnað.

Lesa má nánar um málið í DV í dag


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.