ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Samfylking vill hlífa Ingibjörgu Sólrúnu og Björgvin

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:50 › 17. september 2010
Ábyrgðin er Sjálfstæðismanna, telja Samfylkingarmenn ef marka má niðurstöður nýrrar könnunar frá MMR.

Ábyrgðin er Sjálfstæðismanna, telja Samfylkingarmenn ef marka má niðurstöður nýrrar könnunar frá MMR.

  • Árni M. Mathiesen kemur ekki vel út úr almannaáliti.

    Árni M. Mathiesen kemur ekki vel út úr almannaáliti.

Meirihluti almennings er fylgjandi málshöfðun gegn ráðherrum samkvæmt nýrri könnun Markaðs -og miðlarannsókna. Mikill munur er á viðhorfi til þess hvort höfða beri sakamál fyrir landsdómi eftir stuðningi við stjórnmálaflokka.

Meirihluti landsmanna hlynntur landsdómi
Yfir 60% svarenda sögðust fylgjandi því að höfða beri sakamál fyrir landsdómi gegn fyrrverandi ráðherrunum Árna M. Mathiesen (66,3%), Geir H. Haarde (64,2%) og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur (60,4%). Rúmlega helmingur aðspurðra eða, 51,8%, sögðust fylgjandi því að höfða beri sakamál fyrir landsdómi gegn Björgvin G. Sigurðssyni fyrrverandi viðskiptaráðherra.

Meirihluti landsmanna hlynntur landsdómi
Könnunin leiðir í ljós að stuðningsmenn Samfylkingarinnar vilja málshöfðun gegn ráðherrum Sjálfstæðisflokksins en vilja fremur hlífa sínum eigin ráðherrum. UM 60% stuðningsmanna Samfylkingarinnar eru fylgjandi málshöfðun gegn Árna M. Mathiesen og Geir H. Haarde en tæplega 40% þeirra eru fylgjandi málshöfðun gegn Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Björgvin G. Sigurðssyni.
Sjálfstæðismenn eru síður hlynntir málshöfðun en aðrir. Aðeins þriðjungur sjálfstæðismanna eru hlynntir málshöfðun gegn hvaða ráðherra sem um ræðir meðan meirihluti Vinstri-grænna og framsóknarmanna eru fylgjandi málshöfðun gegn öllum ráðherrunum. Hlutfallið mælist á bilinu 63%-81% .
Þá sögðust 79% til 93% þeirra sem kváðust styðja aðra stjórnmálaflokka vera fylgjandi málshöfðun gegn ráðherrunum



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?