Presturinn sem braut kynferðislega á þremur piltum fyrir 25 árum síðan er farinn úr landi. Játaði hann brot sín fyrir fagráði um meðferð kynferðisbrotamála innan kirkjunnar þegar þau voru borin upp á hann og lýsti því yfir að hann myndi ekki ganga erinda kirkjunnar framar. Maðurinn er á eftirlaunaaldri en hefur sinnt verkefnum fyrir kirkjuna. "Ég veit ekki hvar hann er," segir bróðir mannsins. "Hann fór fyrir nokkrum dögum." Aðspurður hvort hann væri með upplýsingar um hvar væri hægt að ná í manninn svaraði bróðurinn: "Ég hef engar slíkar upplýsingar. Hann lokaði á allt þegar hann fór." Maðurinn fór skyndilega af landi brott fyrir nokkrum dögum síðan. Um leið og presturinn hélt út í heim lokaði hann á öll tengsl við fjölskylduna, samkvæmt bróður hans.
Mágur hans staðfestir hinsvegar við blaðamann að maðurinn hafi farið til Noregs með systur sinni þar sem þau munu dvelja um skeið, en enn sé óráðið hve lengi þau ætli sér að vera þar. Kom fyrirspurn blaðamanns máginum mjög á óvart þar sem hann stóð í þeirri meiningu að samið hefði verið um að fara ekki með mál prestsins í fjölmiðla.
Presturinn er flúinn úr landi
Tengt: Leyndarmál kirkjunnar
- 17. september 2010
Lofuðu prestinum ekki að þegja um málið - 9. september 2010
Afsökunarbeiðni Pálma og Hjálmars - 8. september 2010
Afþakkaði fund með Karli - 8. september 2010
Biskupsmálið: „Ég hélt þessu leyndu fyrir öllum“ - 5. september 2010
Eiginmaður Sigrúnar Pálínu: „Ég brotnaði niður og grét"
Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Ólafur tekur framúr hinum
„Barátta Hönnu Lilju er barátta mín“
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
