Coleen Rooney, eiginkona knattspyrnumannsins Wayne Rooney, hefur ákveðið að gefa honum lokatækifæri eftir að upp komst um framhjáhald hans með tveimur vændiskonum.
Það var glaðbeittur Wayne Rooney sem mætti á æfingu hjá Manchester United í gær en breska blaðið The Sun greinir frá því að Coleen, sem dvalið hefur hjá foreldrum sínum undanfarna daga, hafi snúið aftur í lúxusvillu þeirra hjóna í Manchester um hádegið í gær. Er hún sögð ætla að gefa Rooney tækifæri á að bæta sig. Haldi hann hinsvegar framhjá henni aftur sé öllu lokið á milli þeirra.
Mikið hefur verið fjallað um málefni Waynes Rooneys í bresku pressunni undanfarna daga en hann er sagður hafa haldið framhjá eiginkonu sinni í nokkur skipti á meðan hún var ólétt. Heimildamaður The Sun segir að þó Coleen muni aldrei gleyma framhjáhaldinu sé hún tilbúin að fyrirgefa.
„Coleen veit að hún er undir pressu að segja honum upp. En hún er tilbúin að flytja aftur inn til hans en er samt í þannig ástandi að ef fleiri konur stíga fram í dagsljósið er sambandinu lokið,“ segir heimildamaðurinn.
Hann bætir við að Coleen þurfi á eiginmanni sínum að halda meira en nokkru sinni þar sem tólf ára gömul systir hennar glímir við erfið veikindi. Stúlkan, sem er fötluð, fékk heilablóðfall í síðustu viku og liggur í dái á sjúkrahúsi. „Coleen þarf á hjálp Waynes að halda. Hún ræður ekki við þetta ein.“



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
