Guðjón vonast til að risaskammtur af fúkkalyfjum hafi drepið veiruna sem gerði hann veikan. Hann segir þó vonina um bata enga því sjúkdómurinn sé ólæknandi.
Húsasmiðurinn Guðjón Egilsson smitaðist af taugasjúkdómi fyrir þremur árum. Heilsu hans hrakaði hratt en hann vonast nú til að tekist hafi að drepa veiruna sem herjaði á hann. Hann segir að taugakerfið muni aldrei læknast en að Segway-hjól og rétt lyfjagjöf hafi gert líf hans bærilegra. Hann reynir að njóta líðandi stundar.
Guðjón var fílhraustur þegar hann smitaðist fyrir þremur árum af taugasjúkdómi sem hann fékk eftir að hafa verið bitinn af skógarmítli í Danmörku en skógarmítill er padda sem finnst víða um heim, meðal annars á Íslandi.
Í desember hafði Guðjón lifað við stöðuga verki í marga mánuði og var bæði hættur að geta stundað vinnu og sinnt einföldum viðvikum eins og að ganga út í búð og kaupa í matinn. „Það er stutt þangað til ég fer,“ sagði Guðjón í viðtalinu og lýsti því hvernig hann var þjakaður af verkjum í öllum líkamanum.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því um áramót. Guðjón segir að hann hafi loks verið settur á risaskammt af sterkustu fúkkalyfjum sem til eru.
„Þetta er skammturinn sem Þjóðverjarnir mæla með og var gefið í æð. Ég mætti daglega upp á spítala á Selfossi og lét dæla í mig,“ segir Guðjón sem er bjartsýnn á að meðferðin hafi drepið veiruna þótt taugakerfið verði auðvitað aldrei betra. „Það er engin lækning til en þetta er búið að drepa allt í mér, alveg inn í mænu og heila.“





Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir
Náðu að flýja meðan heimilið logaði