ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Skólastjóri tæmdi sjóð fyrir skólabúðir barna

Valgeir Örn Ragnarsson valgeir@dv.is
06:30 › 10. september 2010
Ingólfur er ákærður fyrir að tæma sjóð sem var ætlaður grunnskólabörnum. Hann hefur þegar endurgreitt upphæðina.

Ingólfur er ákærður fyrir að tæma sjóð sem var ætlaður grunnskólabörnum. Hann hefur þegar endurgreitt upphæðina.

Ríkissaksóknari hefur ákært Ingólf Kjartansson, fyrrverandi skólastjóra Grunnskólans á Tálknafirði, fyrir fjárdrátt. Hann er ákærður fyrir að stinga í eigin vasa styrk sem grunnskólinn fékk frá norrænum samtökum. Styrkurinn átti að renna til barna í grunnskólanum svo þau gætu farið í skólabúðir í Finnlandi. Hann hefur þegar endurgreitt alla upphæðina.

Upp komst um fjárdrátt Ingólfs eftir að starf hans var lagt niður á síðasta ári. Málið snýst um styrk sem skólinn fékk frá samtökunum Nordplus upp á 1,5 milljónir króna. Ingólfur hafði umsjón með verkefninu fyrir hönd skólans og var styrknum ætlað að fjármagna heimsókn grunnskólabarna í skólabúðir í Finnlandi.

Samkvæmt upplýsingum DV hefur Ingólfur þegar endurgreitt Tálknafjarðarhreppi alla upphæðina. Ekki liggur hins vegar fyrir í hvað Ingólfur notaði peningana en heimildir DV herma að fyrstu millifærslurnar hafi verið hugsaðar sem lán sem yrði greitt til baka skömmu síðar.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.