„Síðasta lánið undir sólinni“ komið til Landsbankans

Krafan vegna lánsins sem kallað var „síðasta lánið undir sólinni sem ætti að afskrifa“ er komin til gamla Landsbankans frá Arion banka. Björgólfur og faðir hans voru í sjálfsskuldarábyrgð fyrir láninu sem stendur í sex milljörðum króna. Arion banki og Landsbankinn skiptu á kröfu á hendur Björgólfi og Exista til að bæta stöðu sína í skuldauppgjöri og nauðasamningum þessara tveggja aðila.

Bankar skiptust á lánum

Sex milljarða króna krafa Arion banka á hendur Björgólfi Thor Björgólfssyni, fjárfesti og fyrrverandi eiganda Landsbankans, er komin í eigu gamla Landsbankans, samkvæmt heimildum DV. Krafan er tilkomin vegna láns sem tekið var árið 2005 vegna fjárfestinga í félaginu Samson Properties. Björgólfur Thor er í sjálfskuldarábyrgð fyrir láninu. Skilanefnd Landsbankans sér því nú um innheimtu kröfunnar.

Lán þetta er orðið frægt þar sem greint var frá því, fyrst eftir að sagt var frá því í fjölmiðlum í fyrra, að lánið hefði verið tekið í Búnaðarbankanum til að kaupa Landsbankann árið 2002. Síðar kom í ljós að um annað lán væri að ræða. Þeir Björgólfsfeðgar voru báðir í sjálfskuldarábyrgð fyrir láninu en þar sem Björgólfur Guðmundsson hefur verið úrskurðaður gjaldþrota hvílir krafan á Björgólfi Thor einum.

DV leitaði eftir staðfestingu á kröfuskiptunum hjá Ragnhildi Sverrisdóttur, talsmanni Björgólfs Thors. Svar Ragnhildar var á þá leið að hún gæti ekki tjáð sig um málið: „Björgólfur Thor er bundinn trúnaði við kröfuhafa sína og getur ekki tjáð sig um einstök atriði skuldauppgjörs síns.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.