ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Setja upp smokkasjálfsala fyrir fanga

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
00:27 › 10. september 2010

Stjórnendur San Bruno fangelsisins í San Francisco, Bandaríkjunum, hafa sett upp smokkasjálfsala fyrir fangana. Sjálfsalarnir eru nýjasta skrefið í því að hvetja fangana til að stunda öruggt kynlíf þó svo að þeir megi ekki yfir höfuð hafa samræði við aðra fanga samkvæmt lögum.

„Þetta gæti orðið umdeilt,“ segir lögreglustjórinn Michael Hennessey í viðtali við bandaríska dagblaðið San Francisco Chronicle. „En mér finnst fræðsla um heilsu vera mikilvægari.“ Aðspurður hvort að smokkasjálfsalarnir hvetji fangana til að stunda kynlíf með hvor öðrum segir hann það ekki skipta máli því að fangarnir geri það hvort sem er.

„Ef það að skaffa smokka getur bjargað einu eða tveimur mannslífum, þá er þetta þess virði,“ segir Hennessey.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.