„Þetta er bara brjálæði, það er ekkert öðruvísi,“ segir Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, um aksturslag ökumanns mótorhjóls sem var myndaður við að keyra 22 kílómetra á afturhjólinu á Reykjanesbrautinni. „Það er eins og menn vilji helst ekki vera lifandi. Ég botna þetta ekki,“ segir Geir Jón. „Ég veit ekki hverju það er að þakka að hann hafi ekki bara lent í slysi og dottið eða eitthvað. Það þarf ekkert út af bregða. Ég á ekki til eitt aukatekið orð,“ segir Geir Jón og er greinilega mjög brugðið að heyra af svona aksturslagi.
Hann segir þetta dæmi um algjört hugsunarleysi ökumannsins. „Það hefur margur prjónað svona og farið aftur fyrir sig og hálsbrotnað,“ segir Geir Jón sem á vart orð yfir þessu athæfi. „Það er bara verið að leika sér að dauðanum. Mönnum er nákvæmlega sama um allt.“
Ökumaður sem um ræðir er kallaður SkUgGi í myndbandinu.
Kristján Ó. Guðnason, yfirmaður umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir ekkert í umferðarlögunum sem banni akstur mótorhjóla á einu hjóli. „Það hinsvegar getur varðað refsingu að sýna af sér gáleysi eða aðgæsluleysi í umferðinni. Þetta getur sannarlega fallið þar undir og mundi að öllum líkindum gera það. Það yrði að skoða og eftir atvikum yrði það dómari sem tæki þá afstöðu til þess,“ segir Kristján í samtali við DV.is. Kristján segir að ef lögregla yrði vitni af svona aksturslagi myndi hún stöðva það.
„Það eitt að aka á einu dekki, að prjóna svona eins og hann gerir, það er ekkert ákvæði sem bannar það í sjálfu sér. Hinsvegar framkvæmdin, að aka eins og þessi maður gerir í umferð og á talsverðum hraða, myndi kalla á viðbrögð lögreglu. Væntanlega yrði það eftir atvikum dómari sem tæki afstöðu til þess hvort að þetta varði við fjórðu grein umferðalaganna sem fjallar um tillitssemi og aðgæslu í umferð,“ segir Kristján.





Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“
Landlæknir vill fjarlægja alla PIP brjóstapúða