ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Arion-skuld Björgólfs komin til Landsbankans

05:37 › 10. september 2010
Krafa sem Arion banki átti á hendur Björgólfi Thor Björgólfssyni og Björgólfi föður hans hefur færst yfir til gamla Landsbankans frá Arion banka í skiptum fyrir kröfu á hendur Exista.

Krafa sem Arion banki átti á hendur Björgólfi Thor Björgólfssyni og Björgólfi föður hans hefur færst yfir til gamla Landsbankans frá Arion banka í skiptum fyrir kröfu á hendur Exista.

Sex milljarða króna krafa Arion banka á hendur Björgólfi Thor Björgólfssyni, fjárfesti og fyrrverandi eiganda Landsbankans, er komin í eigu gamla Landsbankans, samkvæmt heimildum DV.

Krafan er tilkomin vegna láns sem tekið var árið 2005 vegna fjárfestinga í félaginu Samson Properties. Björgólfur Thor er í sjálfskuldarábyrgð fyrir láninu. Skilanefnd Landsbankans sér því nú um innheimtu kröfunnar.

Lán þetta er orðið frægt þar sem greint var frá því, fyrst eftir að sagt var frá því í fjölmiðlum í fyrra, að lánið hefði verið tekið í Búnaðarbankanum til að kaupa Landsbankann árið 2002. Síðar kom í ljós að um annað lán væri að ræða. Þeir Björgólfsfeðgar voru báðir í sjálfskuldarábyrgð fyrir láninu en þar sem Björgólfur Guðmundsson hefur verið úrskurðaður gjaldþrota hvílir krafan á Björgólfi Thor einum.

DV leitaði eftir staðfestingu á kröfuskiptunum hjá Ragnhildi Sverrisdóttur, talsmanni Björgólfs Thors. Svar Ragnhildar var á þá leið að hún gæti ekki tjáð sig um málið: „Björgólfur Thor er bundinn trúnaði við kröfuhafa sína og getur ekki tjáð sig um einstök atriði skuldauppgjörs síns.“


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.