Ólafur H. Johnson, skólastjóri og eigandi Hraðbrautar, sendi bræðrum sínum í Frímúrarareglunni bréf í sumar þar sem hann skýrir sína hlið á málefnum skólans. Skólastjórinn ver sig vegna þeirrar umfjöllunar um fjármál skólans sem birst hefur í DV. Hann ræðir þó ekki efnislega um tugmilljóna arðgreiðslur og lánveitingar frá skólanum. Stutt er þar til Ríkisendurskoðun lýkur við úttekt á Hraðbraut.
„Kæru bræður,“ eru fyrstu orðin í tölvupósti sem Ólafur H. Johnson, eigandi og skólastjóri Menntaskólans Hraðbrautar, sendi til reglubræðra sinna í frímúrarareglunni í júlí. Í tölvupóstinum fer Ólafur yfir málefni Hraðbrautar og þá fjölmiðlaumfjöllun sem verið hafði um málefni skólans mánuðinn á undan og ver sig fyrir þeirri gagnrýni sem þar kom fram.
Líkt og komið hefur fram í DV tók Ólafur fleiri tugi milljóna í arð og lán frá skólanum á árunum fyrir íslenska efnahagshrunið og fer Ríkisendurskoðun nú yfir bókhald skólans að beiðni menntamálaráðuneytisins. Skólinn er einkaskóli sem fjármagnaður er að 80 prósenta leyti með opinberu fé en að 20 prósentum með skólagjöldum nemenda hans. Á síðastliðnum sjö árum hefur skólinn fengið meira en 1.100 milljónir króna á fjárlögum frá íslenska ríkinu og virðist hluti þeirra fjármuna hafa runnið til Ólafs í formi arðgreiðslna og til eignarhaldsfélaga hans og viðskiptafélaga í formi lána. Annað sem vakið hefur athygli við starfsemina er að hlutfall launagreiðslna af heildartekjum skólans er rúmlega helmingi minna en í öðrum menntaskólum – um 80 prósent af tekjum flestra menntaskóla fara í launagreiðslur en einungis á bilinu 30 til 40 prósent í Hraðbraut.
Ólafur telur hins vegar að ekkert sé athugavert við bókhald skólans eins og sést í málsvörninni sem hann sendi til bræðra sinna í frímúrarareglunni og lesa má um í DV í dag.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Ólafur tekur framúr hinum
„Barátta Hönnu Lilju er barátta mín“
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
