Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra. Meirihluti Alþingis er hlynntur áframhaldandi aðildarviðræðum jafnvel þótt nokkrir þingmenn VG séu þeim andvígir.
Að minnsta kosti 36 þingmenn eru hlynntir því að halda áfram aðildarumsókn að ESB til enda og greiða því atkvæði gegn þingsályktunartillögu um að draga umsóknina til baka. Samkvæmt úttekt DV eru 24 fylgjandi tillögunni um að draga aðildarumsóknina til baka.
Í röðum stjórnarliða er jafnvel talið að enn fleiri séu hlynntir því að fylgja eftir aðildarumsókninni og vísa til væntanlegra hrókeringa innan ríkisstjórnarinnar.
Að minnsta kosti 7 þingmenn stjórnarandstöðunnar hafna tillögu Ásmundar Einars Daðasonar, Unnar Brár Konráðsdóttur og fleiri, um að draga umsóknina til baka. Þetta eru Þór Saari, Margrét Tryggvdóttir, Birkir Jón Jónsson, Guðmundur Steingrímsson, Siv Friðleifsdóttir, Þráinn Bertelsson og Ragnheiður Ríkharðsdóttir. Ítarlega er fjallað um affstöðu þingsins til ESB í DV í dag.





Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“