Lögreglan leitaði í nótt sex einstaklinga sem vistaðir voru á réttargeðdeild í Árósum. Þeim tókst að flýja en fundust allir.
Sex grænlenskir fangar flúðu af réttargeðdeild háskólasjúkrahússins í Risskov í Árósum í nótt. Talið er að einn fanganna hafi ráðist á tvær konur í nótt og reynt að nauðga þeim.
Fram kemur í dönskum fjölmiðlum í dag að fimm karlmenn og ein kona frá Grænlandi hafi skömmu eftir miðnætti brotist út um hurð á geðdeildinni, brotið rúðu á sjúkrahúsinu til að komast út og loks hoppað yfir gamla girðingu sem til stóð að endurnýja.
Konan fannst skömmu eftir miðnætti þar sem hún hafði slasað sig á fæti við flóttann. Fjórir mannanna fundust á bar um tvöleytið en sá síðasti var ekki handsamaður fyrr en klukkan rúmlega sjö í morgun. Er hann grunaður um að hafa ráðist á og reynt að nauðga tveimur konum í nótt.





Um hvað ræðir FBI á leynilegum fundum? – Hlustaðu hér
Kynlíf í starfslýsingunni
Almennir borgarar dæma Breivik
Börn leggja á sig mörg þúsund kílómetra göngu í leit að betra lífi
Geyma lík í ræstikompum