ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Handtaka Magnúsar góð fyrir Havilland

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:05 › 6. ágúst 2010
Magnús Guðmundsson (t.h.) sést hér á leið í yfirheyrslur hjá sérstökum saksóknara.

Magnús Guðmundsson (t.h.) sést hér á leið í yfirheyrslur hjá sérstökum saksóknara.

Jonathan Rowland, núverandi forstjóri Havilland-bankans í Lúxemborg, neitar því að fyrirtækið Consolium vinni eða hafi nokkurn tímann unnið fyrir bankann. Consolium er félag í eigu Hreiðars Más Sigurðssonar og Ingólfs Helgasonar. Rowland segir að það hafi verið jákvætt fyrir Havilland að Magnús Guðmundsson hafi látið af störfum.

„Handtaka Magnúsar hafði engin slæm áhrif á orðspor Havilland-bankans. Ég myndi frekar segja að hún hafi haft jákvæð áhrif. Fólk sá þetta frekar sem endalok á stjórnarháttum gamla Kaupþings,“ segir Jonathan Rowland aðspurður hvort handtaka Magnúsar Guðmundssonar í maí hafi ekki haft slæm áhrif á orðspor bankans. Rowland tók við forstjórastarfinu þegar Magnús var rekinn í maí eftir að hafa verið dæmdur í gæsluvarðhald á Íslandi vegna Kaupþingsrannsóknar sérstaks saksóknara.

Aðspurður um tengsl bankans við Consolium, fyrirtækis sem er meðal annars í eigu þeirra Hreiðars Más Sigurðssonar og Ingólfs Helgasonar, segir Rowland:

„Ég get staðfest það að Consolium vinnur ekki fyrir Havilland-bankann í Lúxemborg. Fyrirtækið hefur aldrei unnið fyrir bankann.“ svarar Jonathan Rowland, núverandi forstjóri Havilland-bankans, fyrirspurn DV um tengls bankans við Consolium. Lengi hefur verið orðrómur að fyrirtækið Consolium, sem er meðal annars í eigu þeirra Hreiðars Más Sigurðsson og Ingólfs Helgasonar, starfi að mestu við að þjónusta Havilland-bankann í Lúxemborg. Eins og kunnugt er fluttu þeir Hreiðar Már og Ingólfur til Lúxemborgar sumarið 2009 stuttu eftir að útibúi Kaupþings þar í landi var breytt í Havilland-banka sem nú er í eigu bresku Rowland-fjölskyldunnar. DV sagði frá því í maí að bæði Sigurður Einarsson og Hreiðar Már Sigurðsson væru að starfa fyrir Havilland-bankann en þess væri vel gætt að nöfn þeirra kæmu hvergi fram í opinberum skjölum.

Rætt er við Rowland í helgarblaði DV

as@dv.is



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?