ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Voru sátt við endalok Spaugstofunnar

Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
15:35 › 31. ágúst 2010
Flestir voru sáttir með að Spaugstofan væri ekki lengur á dagskrá.

Flestir voru sáttir með að Spaugstofan væri ekki lengur á dagskrá. Mynd DV

Rúmlega sextíu prósent Íslendinga voru sáttir með að Spaugstofan hefði hætt. Aðeins 17,6 prósent voru frekar eða mjög óánægðir með það. Tilkynnt var um það fyrr í dag að Spaugstofan yrði tekin til sýninga á Stöð 2 næstu tvo vetur.

Ríflega áttatíu og tvö prósent Íslendinga sögðust í sömu könnun vera ánægðir eða mjög ánægðir með Jón Gnarr borgarstjóra Reykjavíkur.

Könnunin var gerð af MMR en hún átti að kanna ánægju Íslendinga. Það voru 876 einstaklingar á aldrinum 18 til 67 sem svöruðu könnuninni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?