Hundruð manns hafa sagt sig úr Þjóðkirkjunni vegna sjúlkegs framferðis fyrrverandi biskups og þöggunartilburða núverandi biskups, Karls Sigurbjörnssonar.
Miklar áhyggjur eru nú innan Þjóðkirkjunnar vegna þess fjölda fólks sem hefur ákveðið að snúa baki við stofnun sem er syndum hlaðin vegna þöggunar og hneykslismála. Séra Magnús Erlingsson, sóknarprestur í Ísafjarðarprestakalli, hefur nú gripið til þess ráðs að biðja fólk, með milligöngu vefsíðu kirkju sinnar, um að skrá sig ekki úr Þjóðkirkjunni.
„Í kjölfar sárra tíðinda af vettvangi kirkjunnar þá hafa einhverjir gripið til þess ráðs að segja sig úr Þjóðkirkjunni. Sjálfsagt eru ýmsar ástæður þar að baki. Einhverjum kann að finnast sem hann eigi ekki lengur samleið með kirkjunni á meðan aðrir nota þessa leið til að mótmæla framgöngu kirkjunnar í tilteknum málum,“ segir í pistli Magnúsar
Hann leggur áherslu á að þeir sem vilja hafa kirkju og safnaðarstarf í sinni sókn verði áfram félagar í Þjóðkirkjunni og greiði þangað þær 9000 krónur á ári sem þeim er skylt í gegnum skattkerfið.
„Vilji fólk hins vegar mótmæla þá ætti það annað hvort að skrifa prestinum sínum eða biskupi bréf eða hringja í þessa herramenn og lesa þeim pistilinn,“ segir í pistli Magnúsar.
Hann varar við því að þeir sem láta skrá sig úr kirkjunni losni ekki við að greiða skattinn.
„En í stað þess að sá aur renni til trúfélags í heimabyggðinni þá rennur hann í ríkiskassann hans Steingríms, sem mun víst vera því sem næst botnlaus hít að fróðra manna sögn. Höldum aurunum í heimabyggð í stað þess að senda þá suður!“



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Ólafur tekur framúr hinum
„Barátta Hönnu Lilju er barátta mín“
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
