ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Innsýn í bruðlið í Orkuveitunni: Engu til sparað við eldhúsið

22:25 › 31. ágúst 2010
Það var engu til sparað við byggingu Orkuveituhússins. Lúxusinn í eldhúsinu er sýndur á myndbandinu hér að neðan.

Það var engu til sparað við byggingu Orkuveituhússins. Lúxusinn í eldhúsinu er sýndur á myndbandinu hér að neðan.

Myndband sem ber yfirskriftina „Lítið dæmi um bruðlið í Orkuveitunni“ hefur farið sem eldur um sinu í netheimum í dag. Um er að ræða kynningarmyndband um eldhúsaðstöðu Orkuveituhússins þar sem bersýnilega engu hefur verið til sparað.

Myndbandið kemur á versta tíma fyrir Orkuveituna sem kynnti það í upphafi vikunnar að umtalsverð hækkun á gjaldskrá fyrirtækisins væri óumfrýjanleg. Fyrirhugaðar hækkanir hafa verið harðlega gagnrýndar og enn á ný vakið upp spurningar um rekstur fyrirtækisins. Skuldir Orkuveitunnar nema 230 milljörðum króna og hefur verið ákveðið að fara í víðtæktar aðhaldsaðgerðir og niðurskurð innan fyrirtækisins.

Aðhald og niðurskurður virðist þó ekki hafa ráðið för þegar Orkuveituhúsið að Bæjarhálsi 1 var byggt.

Í myndbandinu sem virðist hafa verið unnið fyrir OR í kynningartilgangi stæra menn sig af því að 15 þúsund gestir fái árlega kræsingar við fundi og móttökur í húsinu. Myndbandið veitir innsýn í lúxusinn í eldhúsinu, allar græjur og tækni eins og hún gerist best.

Myndbandið, sem að vísu er á ensku, má sjá hér að neðan.

Lítið dæmi um bruðlið í Orkuveitunni from Alli Þ on Vimeo.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.