ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Veðsettu lóð í eigu Reykjanesbæjar fyrir milljarð

Jón Bjarki Magnússon jonbjarki@dv.is
08:00 › 25. ágúst 2010
Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar skrifaði undir lóðaleigusamninginn til Toppsins.

Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar skrifaði undir lóðaleigusamninginn til Toppsins. Mynd Róbert Reynisson

  • Á landinu átti að byggja upp Iceland Motopark, þar hafa engar byggingar risið.

    Á landinu átti að byggja upp Iceland Motopark, þar hafa engar byggingar risið.Mynd Róbert Reynisson

Einkahlutafélagið Toppurinn innflutningur ehf. gerði 1. júní 2006 lóðaleigusamning við Reykjanesbæ til 75 ára um leigu á byggingarlóðinni Hjallar 1 og veðsetti í sama mánuði byggingarlóðina upp í rjáfur. DV hefur undir höndum þinglýsingarvottorð þar sem fram kemur að 26. júní 2006 hafi VBS fjárfestingarbanki gefið út 200 skuldabréf fyrir þessari sömu lóð, hvert upp á fimm milljónir króna. Toppurinn innflutningur fékk þannig milljarð króna í lán með því að veðsetja lóð í eigu Reykjanesbæjar.

VBS fjárfestingarbanki hefur verið tekinn í slitameðferð og eiga kröfuhafar bankans því kröfu á veðin í landinu. Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar skrifaði undir lóðaleigusamninginn til Toppsins. Flatarmál svæðisins sem veðsett var er 182 hektarar.

Á þinglýsingarvottorði sem DV hefur undir höndum kemur fram að Reykjanesbær hafi samþykkt veðsetningu landsins. Á vottorðinu er skýrt kveðið á um að ekki sé heimilt að veðsetja eða framselja byggingarlóð fyrr en mannvirki séu orðin fokheld og til þess að slík veðsetning sé möguleg þurfi sérstakt leyfi byggingarfulltrúa. Í júní 2006 voru framkvæmdir á svæðinu ekki hafnar en fyrsta skóflustungan var tekin 30. september sama ár og því voru þar engin fokheld mannvirki. Þinglýsingarvottorðinu fylgdi þrátt fyrir þetta samþykki byggingarfulltrúans Einars Júlíussonar.

Félagið Toppurinn innflutningur er í eigu aðila sem hafa rekið fjölda annarra einkahlutafélaga í Reykjanesbæ sem orðið hafa gjaldþrota, þar á meðal Jarðvélar sem sá um tvöföldun Reykjanesbrautar þar til verkefnið var boðið út til annarra aðila. Á svæðinu Hjallar 1 átti að reisa kappakstursbrautir og hótelmannvirki. Engin hús hafa risið á svæðinu og óvíst er hvort svo verði í bráð. Ólafur Thordarsen, bæjarfulltrúi A-lista, benti árið 2008 á að framkvæmdir á svæðinu færu á svig við lög og reglur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?