ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Geir Waage: „Þetta var einkasamtal okkar á milli“

Birgir Olgeirsson birgir@dv.is
12:26 › 25. ágúst 2010
Geir Waage.

Geir Waage.

„Já já ég er mjög sáttur,“ segir sr. Geir Waage um fund sinn með Karli Sigurbjörnssyni biskupi í morgun vegna umdeildra ummæla Geirs um tilkynningaskyldu presta samkvæmt barnaverndarlögum. „Ég gef ekkert upp um það,“ segir Geir þegar hann er spurður hvort hann hafi fengið tiltal frá biskupi. Hann sagði Karl biskup hafa greint frá efni fundarins við fréttamenn að fundi loknum og vitnaði því í þau orð, aðspurður um fundinn. „Það sem ég sagði, sagði ég og það sem hann sagði, sagði hann, segir Geir. „Þetta var einkasamtal okkar á milli.“

„Það hefur aldrei verið neinn vafi á því að ég mun hlýða lögum. Ég hef alltaf hlýtt lögum og hef verið talsmaður þess,“ segir Geir.
Aðspurður um hvort það stangist á við sannfæringu sína að fara eftir tilkynningaskyldu presta samkvæmt barnaverndalögum segir hann: „Nei, nei. Ég hlýði lögum og hef alltaf verið talsmaður þess.“

Að öðru leyti vildi Geir ekki tjá sig neitt umfram það sem kemur fram í svörum biskups eftir fundinn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?