ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Þarf að leita stuðnings þjóðarinnar um áframhaldandi setu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:13 › 24. ágúst 2010

Formaður Prestafélags Íslands, Guðbjörg Jóhannesdóttir, segir Karl Sigurbjörnsson biskup þurfa að leita stuðnings hjá preststéttinni og þjóðinni um áframhaldandi setu sem biskup. Guðbjörg sagði í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins að Þjóðkirkjan þyrfti að taka vel á þeim þremur málum sem snúa að Ólafi Skúlasyni biskup en hún sagði kirkjuna eiga langt eftir í að endurbyggja traust sitt hjá þjóðinni.

Hún sagði að ekki hefði tekist að taka almennilega á þessum málum eftir að nýr biskup tók við af Ólafi Skúlasyni og að það sé sýnt að stjórnsýsla kirkjunnar hefur brugðist.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?