Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Þýskur bankaræningi leiddi lögreglu beint í fangið á sér eftir að hafa ögrað lögreglu með tölvupósti. Lögregla í þýsku borginni Wuerzburg segist hafa handtekið þennan nítján ára gamla bankaræningja á miðvikudag eftir að hann hafði sent lögreglu og dagblöðum tölvupóst þar sem hann benti á villur í fréttum af bankaráni hans í Roettingen fyrir viku.
Þýska dagblaðið Bild segir ræningjann hafa hæðst að lögreglunni fyrir að hafa aldur hans, hæð og hreim rangan og sagðist einnig hafa komist undan í bíl, ekki hlaupandi.
Lögreglan rakti tölvupóstinn og handtók hann í veðmálahöll í Hamborg nokkrum klukkutímum seinna.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
