Fjárfestirinn Róbert Wessman, sem var forstjóri Actavis til ársins 2008, varar fólk við rangfærslum Björgólfs Thors Björgólfssonar á nýrri vefsíðu hans. Róbert segir markmið Björgólfs með vefsíðunni skýr. „Fátt virðist heilagt í skrifum hans.“
Í yfirlýsingu sem Róbert sendi fjölmiðlum gerir hann athugasemdir við lýsingar Björgólfs á starfslokum sínum hjá Actavis. Björgólfur hafði á síðu sinni greint frá því að þegar eigendur Actavis hafi kynnst starfsemi félagsins eftir að það var afskráð af hlutabréfamarkaði, hafi komið í ljós að rekstraráætlanir stjórnenda stæðust engan veginn. Róberti, sem verið hafði forstjóri Actavis á árunum 1999 til 2008, hafi því verið skipt út sem forstjóra og Sigurður Óli Ólafsson ráðinn.
Novator kæfði Actavis í skuldum
Róbert segir þessi orð Björgólfs dæma sig sjálf sem marklaus enda hafi Björgólfur verið stjórnarformaður Actavis í átta ár og að halda því fram að hann hafi fyrst kynnst rekstri félagsins á níunda árinu sé út í hött. Róbert segir að eins og svo oft áður fari Björgólfur með rangt mál.
„Við yfirtöku Novators á Actavis var félagið kæft í skuldum og íþyngdi rekstur þess verulega. Skuldsetning Novator á Actavis við yfirtökuna var um 12 sinnum framlegð félagsins sem gerði rekstur þess fjárhagslega mjög veikburða,“ segir Róbert.
Hafði engan áhuga á að starfa með Björgólfi
„Í framhaldi af afskráningu Actavis á hlutabréfamarkaði hafði ég hug á því að snúa mér alfarið að eigin fjárfestingum og hafði aukið umsvif mín á þeim vettvangi. Jafnframt lýsti ég því ítrekað yfir við Björgólf að ég hefði ekki áhuga að starfa frekar með honum af ástæðum sem verða ekki tíundaðar hér,“ segir Róbert í athugasemd sinni til fjölmiðla.
Björgólfur leitar blóraböggla
Róbert segir markmið vefsíðu Björgólfs skýrt og fátt virðist heilagt í skrifum hans. „Eins og oft áður er megináhersla lögð á að finna blóraböggla fyrir því sem miður hefur farið í hans fjárfestingum. Fjölmiðla- og áróðursmeistarar Björgólfs róa nú öllum árum að því að hreinsa skaðað orðspor hans og þræða nýjar víddir í þeim efnum.“
Róbert lýkur yfirlýsingu sinni með að skora á fjölmiðla að skoða yfirlýsingar Björgólfs með gagnrýnum augum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Ólafur tekur framúr hinum
„Barátta Hönnu Lilju er barátta mín“
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
