Ólafur Ragnar athugaði málið og fann engar heimildir um samtalið við Björgólf 3. október 2008. Mynd: Heiða Helgadóttir
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, kannast ekki við að hafa hringt í Björgólf Thor Björgólfsson þann 3. október 2008 til að hvetja hann til að koma aftur til Íslands vegna yfirvofandi erfiðleika bankanna.
Í skýrslu sem Björn Jón Bragason vann fyrir Björgólf Thor um aðdraganda falls Landsbankans og birtist á vefsíðu fjárfestisins BTB.is í gær segir, líkt og áður hafði komið fram, að Björgólfur hafi verið staddur hér á landi 28. september 2008 í einkaerindum þegar hann dróst inn í hrundansinn í kringum bankana.
Björgólfur hafi hins vegar haldið aftur til London miðvikudaginn 1. október en í skýrslunni segir að föstudaginn 3. október hafi Björgólfur fengið símtöl frá „fjölmörgum áhrifamönnum hér heima sem hvöttu hann til að koma aftur út til Íslands, þar sem ástandið væri erfitt. Þar á meðal hafði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti lýðveldisins, samband og brýndi fyrir Björgólfi að halda heim- það væri „mjög gott“ að hann kæmi.“
Þrátt fyrir að umdeilt samband hafi verið milli Ólafs Ragnars og framámanna íslenska viðskiptalífsins á árunum fyrir hrun líkt og gagnrýnt er í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis kannast forsetinn ekki við að hafa umrætt símtal í Morgunblaðinu í dag. „Ég kannaði heimildir sem ég hef undir höndum og sé ekkert um samtöl við Björgólf Thor þessa daga,“ segir Ólafur í Morgunblaðinu í dag.
Höfundur skýrslu Björgólfs hefur hann fyrir þessu meinta samtali.
Ólafur Ragnar er því annar aðilinn sem stígur fram og véfengir þær upplýsingar sem fram koma á vefsíðu Björgólfs Thors frá því hún opnaði klukkan 14 í gær. Róbert Wessman hafði áður gagnrýnt Björgólf harðlega fyrir meintar rangfærslur um starfslok sín hjá Actavis líkt og DV.is sagði frá í morgun.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna